banner

Landslið Íslands á NM

Laugardaginn 8. apríl næstkomandi fer fram Norðurlandameistaramótið í karate sem haldið er í Tallinn, Eistlandi í ár. Ísland sendir 12 keppendur að þessu sinni auk þess er keppir hópkatalið kvenna. Norðurlandameistaramótið er mjög sterkt í ár, um 263 keppendur skráðir frá öllum norðurlöndunum auk Eistlands, Lettlands og Litháen, sem er boðið að taka þátt í mótinu. Keppt er í 3 aldursflokkum, cadet (14-15ára), junior (16-17ára) og senior (18ára og eldri), bæði í kata og kumite.

Í gegnum tíðina hefur Ísland verið að ná ágætis árangri og í fyrra vann landsliðið 2 silfurverðlaun og 4 bronsverðlaun, bæði í einstaklingsflokkum og í liðakeppni. Landsliðið hefur verið í stífum æfingarbúðum að undanförnu undir leiðsögn landsliðsþjálfarana þeirra Ingólfs Snorrasonar og Vilhjálms Svans Vilhjálmssonar. Auk þeirra fara með hópnum formaður Karatesambandsins, 3 dómarar og 3 liðsstjórar.

Á meðal keppenda eru margir mjög sterkir einstaklingar sem hafa unnið til verðlauna á Heims- og/eða Evrópumeistaramótum.

Jakob Diaz, Danmörk, brons á EM U21, Cadet Kumite Male 70+ kg
Jonas Friis-Pedersen, Danmörk, Evrópumeistari á EM U21 2015 í Junior Kumite Male -68 kg
Katrine Pedersen, Danmörk, silfur, HM 2016 í Female Kumite -68 kg
Paabo Tanel, Eistland, silfur, Karate1 Premier League, Male Kumite 84+ kg
Anna Sokk, Eistland, Evrópumeistari í kumite junior female -48kg
Emma Aronen, Finnland, brons, Karate1 Premier League, Female Kumite -61 kg
Titta Keinanen, Finnland, brons, Karate1 Premier League, Female Kumite -68 kg
Kalvis Kalnins, Lettland, silfur Karate1 Premier League, Male Kumite -60 Kg
Kristine Vica, Lettland, brons, EM U21 2017, Junior Kumite Female -53 kg
Ruslans Sadikovs, Lettland, brons, EM 2015 í Male Kumite -75 Kg
Lotte Ørbæk Andersen, Noregur, brons, Karate1 Premier League, Female Kumite 68+ kg
Gitte Brunstad, Noregur, silfur á HM 2014 í kumite -68kg
Hana Antunovic, Svíþjóð, brons, Karate1 Premier League, Female Kumite 68+ kg
Mia Karlsson, Svíþjóð, brons, á EM U21, Female kata

Landslið Íslands í karate er:

Arna Katrín Kristinsdóttir, Breiðablik, kata og hópkata
Aron Anh Ky Huynh, ÍR, kata
Aron Bjarkason, Þórshamar, kata
Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir, kumite
Elías Snorrason, KFR, kata
Embla Kjartansdóttir, Fylkir, kumite
Iveta Ivanova, Fylkir, kumite
Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik, kata og hópkata
Máni Karl Guðmundsson, Fylkir, kumite
Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir, kumite
Sigríður Hagalín Pétursdóttir, KFR, kata
Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik, kata og hópkata

Á meðfylgjandi mynd má sjá landsliðshópinn með þjálfurum. Á myndinni eru, aftari röð frá vinstri; Ingólfur Snorrason landsliðsþjálfari, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Ólafur Engilbert Árnason, Elías Snorrason, Aron Bjarkason, Aron Anh Ky Huynh, Máni Karl Guðmundsson og Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson landsliðaþjálfari. Fremri röð frá vinstri; Svana Katla Þorsteinsdóttir, Embla Kjartansdóttir, Sigríður Hagalín Pétursdóttir,Iveta Ivanova, Arna Katrín Kristinsdóttir og Laufey Lind Sigþórsdóttir.

About Reinhard Reinhardsson