banner

Nýir dómarar hjá KAÍ

20161021_202124Karatesambandið stóð fyrir dómaranámskeiði í kata og kumite nú í vor. Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sá um námskeiðin sem var í formi fyrirlesturs og í framhaldi af honum var haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa. Farið var yfir keppnisreglur WKF útgáfu 2017.

Góð þátttaka var á námskeiðinum og vill Karatesambandið koma á framfæri þakklæti fyrir góð viðbrögð við óskum um betri þátttöku í starfi sambandsins.

Á laugardeginum, 25. mars, á meðan þriðja Bushidómóti vetrarins fór fram, var haldið verklegt próf.  Til að ná prófi og fá Judge-B réttindi í kumite og/eða kata, þarf að standast bæði skriflegan og verklegan hluta prófsins.

Nýir dómarar í kumite eru;
Máni Karl Guðmundsson, Fylkir, Kumite Judge-B
Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir, Kumite Judge-B

Nýir dómarar í kata eru;
Arnar Þór Björgvinsson, Aftureldingu, Kata Judge-B
Birkir Jónsson, Þórshamar, Kata Judge-B
Guðbjörg Rún Torfadóttir, Fjölni, Kata Judge-B
Ragnar Eyþórsson, Breiðablik, Kata Judge-B

Við óskum þeim til hamingju með áfangann.

About Reinhard Reinhardsson