banner

Danska meistaramótið 2018

Danska meistaramótið í karate 2018 fór fram dagna 23. – 25. mars í Gråkjær Arena, Holstebro, Danmörku.

Ísland átti þrjá fulltrúa á mótinum, þá Ólaf Engilbert Árnason, keppanda, Helga Jóhannesson, dómara og Arnar Olafsson Klargaard sem er einn af skipuleggjendum mótsins.
Ólafur, Helgi og Arnar

Ólafur keppti í tveimur flokkum fyrir Sportkarate.dk, -75kg í senior flokki og -75 kg í U21 flokki.
Hann tapaði fyrstu viðureign í senior flokki og fékk ekki uppreisn. Hins vegar náði hann í silfur í U21 flokknum eftir að hafa unnið fyrstu viðureignina 4-1 og þá næstu 2-0. Í úrslitum tapaði hann 0-2 fyrir Jonas Friis-Pedersen sem varð Danmerkurmeistari í flokknum.

Ólafur að keppa

Helgi að dæma í úrslitum.

About Reinhard Reinhardsson