banner

Aron Bjarkason og María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri bikarmeistarar 2018

Föstudaginn 23. nóvembers fór fram þriðja og síðasta bikarmót ársins í karate, mótið var haldið í Fylkisselinu, Norðlingaholti í umsjón Karatedeildar Fylkis. Eftir að úrslit lágur fyrir var ljóst hverju eru bikarmeistara í karate 2018.

Stigahæstu konurnar urðu;
María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar, 45 stig
Arna Katrín Kristinnsdóttir, Breiðablik, 30 stig
Iveta Ivanova, Fylkir, 20 stig

Stigahæstu karlarnir urðu;
Aron Bjarkason, Þórshamar, 33 stig
Aron Ahnh Ky Hyunh, ÍR, 30 stig
Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir, 28 stig

Á meðfylgjandi mynd má sjá bikarmeistarana, Maríu Helgu og Aron Bjarkason.

Laugardaginn 24. desember, fór fram þriðja GrandPrix bikarmótið sem er mótaröð fyrir 12-17 ára unglinga, þar sem keppt er í kata og kumite, skipt í aldursflokka en miðað er við fæðingarár. Þau sem stóðu uppi sem sigurvegarar og GrandPrix bikarmeistarar eru;

Kata 12 ára drengir, Björn Breki Halldórsson, KFR
Kata 12 ára stúlkur, Anna Koziel, KFR
Kata 13 ára drengir, Þorgeir Björgvinsson, UMFA
Kata 13 ára stúlkur, Eydís Magnea Friðriksdóttir, Fjölnir
Kata 14-15 ára drengir, Tómas Pálmar Tómasson, Breiðablik
Kata 14-15 ára stúlkur, Oddný Þórarinsdóttir, UMFA
Kata 16-17 ára drengir, Aron Bjarkason, Þórshamar
Kata 16-17 ára stúlkur, Móey María Sigþórsdóttir McClure, Breiðablik

Kumite 12 ára drengir, Björn Breki Halldórsson, KFR
Kumite 12 ára stúlkur, María Bergland, KFA
Kumite 13 ára drengir, Hugi Halldórsson, KFR
Kumite 13 ára stúlkur, Viktoría Ingólfsdóttir, Fylkir
Kumite 14 ára piltar, Björgvin Snær Magnússon, KFA
Kumite 14-15 ára stúlkur, Sóley Eva Magnúsdóttir, KFA
Kumite 15 ára piltar, Samuel Josh Ramos, Fylkir
Kumite pilta 16-17 ára, Daníel Aron Davíðsson, Fylkir
Kumite stúlkna 16 og 17 ára, Iveta Ivanova, Fylkir

GrandPrix meistarar 2018

About Reinhard Reinhardsson