banner

Karatekona og karatemaður ársins 2018

Stjórn Karatesambands Íslands hefur útnefnt eftirfarandi karatekonu og karatemann ársins 2018.

Karatekona ársins 2018.

Iveta C. Ivanova, Karatedeild Fylkis.

Iveta hefur verið sigursæl karatekona síðustu ár í sínum aldursflokki. Hún keppir í kumite og hefur náð frábærum árangri á árinu. Hún varði Smáþjóðameistaratitil sinn frá fyrra ári, auk þess að vera Íslandsmeistari í -55kg flokki kvenna. Hún hefur verið í verðlaunasætum erlendis sem og innanlands síðstu ár.

Helstu afrek Ivetu á árinu 2018 voru;

Smáþjóðamót í karate -53kg junior female, 1. sæti
Íslandsmeistari fullorðinna -55 kg female, 1 sæti
Íslandsmeistari unglinga -53 kg junior female, 1. sæti
Berlín open, -53 kg junior female, 1. sæti
Berlín open, -55 kg U21 female, 3. sæti
Amsterdam open, -53 kg junior female, 1. sæti
Swedish open -53 kg junior female, 1. sæti
Randori Þýskaland -53 kg junior female, 2. sæti
Central England open -53 kg junior female, 1. sæti
Central England open mixed team senior, 2. sæti
Álaborg open -53 kg junior female, 3. sæti

Hún er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar

Karatemaður ársins 2018.

Ólafur Engilbert Árnason, karatedeild Fylkis.

Ólafur hefur verið sigursæll á mótum bæði erlendis og innanlands undanfarin ár. Hann keppir í kumite og hefur náð góðum árangri á árinu.
Hann er Íslandsmeistari í -75 kg flokki í kumite karla. Hann stundar nú æfingar í Danmörku undir handleiðslu landsliðsþjálfara Dana í kumite.

Helstu afrek Ólafs á árinu voru;

Íslandsmeistari fullorðinna -75 kg senior male, 1. sæti
Íslandsmeistari fullorðinna, liðakeppni, 1. sæti
Ishöj Karate Cup -75 kg senior male, 3. sæti
Ishöj Karate Cup -75 kg U21 male, 3. sæti
Ishöj Karate Cup open male, 3. sæti
Ishöj Karate Cup liðakeppni, 3. sæti
Swedish open -75 kg male, 2. sæti
Swedish open open male, 1. sæti
Danska meistaramótið -75 kg U21 male, 2. sæti
Central England open -75 kg senior male, 3. sæti
Central England Open mixed team senior, 2. sæti
Smáþjóðamót í karate -75 kg senior male, 3. sæti
Smáþjóðamót í karate team male, 3. sæti
Álaborg open -75 kg senior male, 2. sæti

Hann er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Iveta

Ólafur

About Reinhard Reinhardsson