32. Karateþing, sunnudaginn 17. febrúar 2019
Karateþing verður haldið sunnudaginn 17. febrúar 2019 í E-fundarsal ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal kl. 10.00 – 15.00.
Áætluð þinglok eru kl. 15.00.
Hvert héraðssamband og íþróttabandalag, þar sem stundað er karate, á rétt á einum fulltrúa. Fjöldi fulltrúa hvers félags fer eftir fjölda iðkenda samkvæmt lögum KAÍ.
Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu skal tilkynna stjórn KAÍ minnst 21 degi fyrir þingið.
Þá skal stjórn KAÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa í síðasta lagi 14 dögum fyrir þingið, sem síðara fundarboð.
Þingstörf samkvæmt lögum sambandsins. http://www.kai.is
Kjörbréf fylgir með seinni tilkynningu.