banner

Frábær árangur á NM 2019

Frábær árangur náðist á Norðurlandameistaramótinu í karate sem var haldið í Kolding, Danmörku, laugardaginn 23. nóvember.

Þrettán Íslendingar kepptu á Norðurlandamótinu í karate í Danmörku og unnu samtals þrjú silfur og tvö brons, öll í kata.

Bestum árangri náði Þórður Jökull Henrysson, sem vann báða undanriðla sína með yfirburðum og keppti til úrslita í flokki 16-17 ára pilta í kata. Í úrslitum mætti hann Finnanum Teo Lappalainen. Þórður hlaut þar einkunnina 22,08 fyrir öfluga framkvæmd á kata Anan Dai, en Finninn náði 22,14 í einkunn fyrir sína kata og vann því Þórð með aðeins 0,06 stiga mun, sem er minnsti mögulegi munur á heildareinkunnum. Þórður er að stimpla sig rækilega inn sem einn besti ungi katamaður Norðurlandanna.

Í 16-17 ára stúlknaflokki í kata varð Freyja Stígsdóttir langhæst í sínum undanriðli, rúmlega einum heilum á undan öðrum keppendum. Í úrslitum mætti hún ríkjandi Norðurlanda- og Danmerkurmeistara, Josephine Christiansen, og tapaði fyrir henni með 0,36 stiga mun.

Hugi Halldórsson hreppti svo silfur í kata í flokki 14-15 ára pilta. Hann vann undanriðli sinn örugglega og mætti Svíþjóðarmeistaranum William Tran í úrslitum. Tran vann með talsverðum yfirburðum, rúmlega 1 heilum í einkunn. Í sama flokki og Hugi keppti einnig Tómas Pálmar Tómasson. Hann tapaði fyrir Tran í undanriðli og en tryggði sér viðureign um bronsið, sem hann vann af miklu öryggi.

Í flokki 14-15 ára stúlkna í kata varð Eydís Magnea Friðriksdóttir önnur í undanriðli sínum og vann svo bronsviðureign sína örugglega.

Aron Anh Ky Huynh var svo hársbreidd frá bronsverðlaunum í karlaflokki. Í annarri umferð gerði hann sér lítið fyrir og skákaði ríkjandi Norðurlandameistara, Svíanum Alexander Pagot. Aron varð annar í riðlinum á eftir Dananum August Andersen og tryggði sér viðureign um bronsið gegn Dovydas Zymantas frá Litháen. Aftur skildu aðeins 0,06 stig á milli keppenda og var það Litháinn sem fékk bronsið.

Í kumite náðu Mani Karl Guðmundsson, Hugi Halldórsson og Iveta Ivanova bestum árangri Íslendinganna. Öll komust þau í bronsviðureign í sínum flokkum en töpuðu naumlega.

Freyja Stígsdóttir, silfur í kata junior female
Þórður Jökull Henrysson, silfur í kata junior male
Hugi Halldórsson, silfur í kata cadet male
Eydís Magnea Friðrikdsóttir, brons í kata cadet female
Tómas Pálmar Tómasson, brons í kata cadet male

einnig náðu fimmta sæti í sínum flokkum:

Aron Anh Ky Hyunh, kata senior male
Hugi Halldórsson, kumite cadet male -70 kg
Iveta C. Ivanova, kumite senior female -55 kg
Máni Karl Guðmundsson, kumite senior -67 kg

Heildarúrslit NM 2019

About Reinhard Reinhardsson