banner

Karatekona og karatemaður ársins 2022

Karatekona ársins 2022:

Eydís Magnea Friðriksdóttir, Karatedeild Fjölnis.

Eydís er ung og efnileg karatekona sem keppir í báðum greinum karate, kata og kumite.

Hún á að baki gott keppnisár þar sem hún vann til verðlauna bæði innanlands sem erlendis.
Hún vann gull á RIG22 og varð Bikarmeistari kvenna og Íslandsmeistari ungmenna í kata og kumite.
Hún vann 2 brons á Evrópumóti smáþjóða í karate í Lichtenstein í september og tvö brons á Norðulandamótinu sem haldið var í Riga, Lettlandi í nóvember síðastliðnum.

Hún er fastamenneskja í landsliði Íslands í kata og er góð fyrirmynd og verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Karatemaður ársins 2022:

Þórður Jökull Henrysson, Karatedeild Aftureldingar.

Þórður Jökull er efnilegur keppnismaður sem hefur einbeitt sér að keppni í kata undanfarin ár.
Hann hefur verið með bestu keppendum Íslands í kata og unnið til verðlauna innanlands sem utan á árinu.

Hann vann tvö gull á Evrópumóti smáþjóða í Lichtenstein í September, í fullorðinsflokki og 18-20 ára flokki.
Hann er Íslandsmeistari í kata karla frá því í mars og Bikarmeistari í kata karla frá því í nóvember.
Vann einnig gull á RIG22 í kata.

Hann er fastamaður í landsliði íslands í kata og góð fyrirmynd og verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Þórður og Eydís

Eydís

Þórður

About Reinhard Reinhardsson