banner

KAÍ dómaranámskeið í Kumite 2026

Karatesamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Kumite fimmtudaginn 24. september næstkomandi kl. 18:30 í Egilshöll, Reykjavík.
Kristján Ó. Davíðsson, NKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF í Kumite. Fyrirlesturinn og skriflega prófið taka um 2 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer fram á 3. Grand Prix mótinu sem fram fer laugardaginn 26. september.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar á ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (https://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Vinsamlegast skráið mætingu, hvort sem það er einungis á fyrirlestur eða þá í próf. Skráning
Prófið fer fram á ensku.

About Gaukur Garðarsson