Karateveisla um mánaðamótin
Það verður sannkölluð karateveisla helgina 31. október til 1. nóvember þegar þrjú spennandi karatemót fara fram í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi
Laugardaginn 31. október fer Íslandsmót barna í kumite fram fyrir hádegi og Bikarmót KAÍ tekur svo við eftir hádegi.
Sunnudaginn 1. nóvember verður síðan keppt á Íslandsmeistaramóti unglinga í kumite.
Það má því búast við glæsilegri karatehelgi þar sem iðkendur á öllum aldri koma saman, sýna hæfileika sína og etja kappi við aðra keppendur.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á öll mótin í Sportdata.
Við hvetjum alla karateáhugamenn til að mæta í íþróttahúsið Digranes og upplifa spennandi keppni og frábæra stemningu!

