Tveir íslenskir keppendur á EM
Ísland á tvo keppendur á Evrópumeistaramótinu í karate sem fram fer í Guadalajara á Spáni, en þau Iveta Ivanova og Ólafur Engilbert Árnason keppa í sínum flokkum fimmtudaginn 28 mars.
Iveta Ivanova keppir þar í fyrsta sinn á stórmóti fullorðinna, en Iveta er nýorðin 18 ára og keppir í -55 kg flokki. Keppendur frá Úkraínu, Ítalíu, Tyrklandi og Þýskalandi hafa verið sigurstranglegir undanfarin ár í flokknum en undirbúningur hefur staðið yfir í allnokkrar vikur og er ljóst að samkeppnin verður mjög hörð.
Ólafur Engilbert keppir í -75 kg flokki en Ólafur býr í Danmörku og æfir í Álaborg.
Ingólfur Snorrason, landsliðsþjálfari, fylgir þeim Ólafi og Ivetu og einnig er Reinhard Reinhardsson, formaður KAÍ, með í för.
Uppfært.
Óli fékk Pavel Artamonov, Eistlandi, í fyrstu umferð en Pavel er Norðurlandameistari síðustu tvö ár í -75 kg flokki.
Engin stig voru skoruð í bardaganum en Óli náði Pavel niður er um 10 sekúndur voru eftir og var nærri því að skora á hann. Pavel hafði þó sigur, 4-1, í dómaraúrskurði.
Pavel tapaði síðan 3-0 fyrir Joe Kellaway, Englandi, og því uppreisn úr sögunni fyrir Óla. Rafael Aghayev og Luigi Busa keppa til úrslita í flokknum.
Iveta keppti við Ivet Goronova, Búlgaríu, í fyrstu umferð og eftir jafnan bardaga tapaði Iveta 1-0 en var á eftir Goronova síðustu mínútuna. Goronova tapaði síðan fyrir Tuba Yakan, Tyrklandi, 5-0, en Iveta tapaði naumlega fyrir Yakan í Salzburg á dögunum.
Yakan fór síðan í úrslit, keppir þar við Jennifer Warling frá Luxembourg og Ivet Goronova keppir um þriðja sætið við Anzhelika Terliuka frá úkraínu.