banner

Norðurlandameistarmót 2015 úrslit

KAI_NM2015_Teamkata_maleEitt silfur og 8 brons á NM í karate

Norðurlandameistaramótið í karate fór fram í Laugardalshöll, í gær laugardaginn 11.apríl.  Um 190 keppendur frá 7 þjóðum mættu til leik og var keppt á 3 völlum samtímis.  Norðurlönd eiga mjög marga sterka keppendur, þar af 2 ríkjandi Evrópumeistara og silfurverðlaunahafa af Heimsmeistaramótum.  Ísland átti 33 keppendur á mótinu og stóðu þeir sig ágætla, uppskera dagsins var 1 silfur og 8 brons. Keppt var í 29 einstaklingsflokkum þar sem skipt er í flokka eftir aldri keppenda ásamt því að keppt var í 4 liðakeppnum karla og kvenna, í kata og kumite.  Mjög margar skemmtilegar og spennandi viðureignir sáust yfir daginn og unnu t.d. Evrópumeistararnir Jonas Friss-Pedersen, Danmörk, og Madeleine Lindstöm, Svíþjóð, sína flokka nokkuð örugglega.  Flest öll úrslit réðust yfir daginn utan 8 stærstu fulllorðinsflokkanna sem fóru fram seinna um daginn í svo kölluðum Super Finals. Þar vann m.a. silfurverðlaunahafinn frá síðasta Heimsmeistaramóti Gitte Brunstad, Noregi, sinn flokk.  Hámark keppninnar var í liðakeppni í kumite kvenna þar sem Finnland og Noregur áttust við.  Eftir 3 viðureignir var jafnt á sigrum og stigum, þannig að beita þurfti sérreglu þar sem aukaviðureign milli liðanna fór fram. Þar mættust tvær af sterkustu karatekonum norðurlanda í frábærri viðureign, þær Gitte Brunstad, Noregi, og Helena Kuusisto, Finnlandi, sem báðar höfðu unnið sinn flokkinn hvor fyrr um daginn.  Í úrslitaviðureigninni fór svo að Helena lagði Gitte og þar með unnu Finnar sigur og Norðurlandameistaratitilinn í liðakeppni kvenna.

Þegar heildarstigin voru tekin saman, þar sem 5 stig eru gefin fyrir 1.sæti, 3 stig fyrir 2.sæti og 1 stig fyrir 3.sætið, stóð Danmörk uppi sem sigurvegari . Yfirdómarar voru Javier Escalante frá Svíþjóð og Robert Hamara frá Noregi. Vallarstórar voru Kjell Jackobsen frá Noregi, Pirkko Heinonen frá Finnlandi og Helgi Jóhannesson frá Íslandi. Mótsstjórar voru Agnar Helgason og María Jensen.

Íslensku verðlaunahafarnir voru;
2.sæti Kata team male, Bogi Benediktsson, Davíð Guðjónsson, Sæmundur Ragnarsson
3.sæti Kata team female, Katrín Kristinsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Svana katla Þorsteinsdóttir
3.sæti, Kumite team male, Elías Guðni Guðnason, Björn Díego Valenzia, Jón Ingi Þorvaldsson, Pétur Rafn Bryde, Sverrir Ólafur Torfason
3.sæti, Kumite male cadet -52kg, Hreiðar Páll Ársælsson
3.sæti, Kumite male cadet -63kg, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson
3.sæti, Kumite female junior -59kg, Edda Kristín Óttarsdóttir
3.sæti, Kumite female junior +59kg, Katrín Ingunn Björnsdóttir
3.sæti, Kumite female senior -55kg, María Helga Guðmundsdóttir
3.stæti, Kumite male senior -75kg, Elias Guðni Guðnason
NORÐURLANDAMEISTARAR
Category Name Country
Kata female senior Mia Karlsson SWE
Kata male senior Christopher Rohde DEN
Kata female junior Frederikke Bjerring DEN
Kata male junior Khai Truong SWE
Kata female cadet Smilla Hagman SWE
Kata male cadet David Pham SWE
Kata team female Sweden SWE
Kata team male Norway NOR
Kumite female cadet -47kg Loren Zarei SWE
Kumite female cadet -54kg Maria Korpela FIN
Kumite female cadet +54kg Madeleine Lindström SWE
Kumite male cadet -52kg Nicky Hansen DEN
Kumite male cadet -57kg Mads Viberg DEN
Kumite male cadet -63kg Rasmus Mortensen DEN
Kumite male cadet -70kg David Engman SWE
Kumite male cadet +70kg Theis Klausen DEN
Kumite female junior -53kg Anna Johann Nilsson SWE
Kumite female junior -59kg Caroline Alberg DEN
Kumite female junior +59kg Angela Zaqoomi DEN
Kumite male junior -61kg Daniel Cho Johnsen NOR
Kumite male junior -68kg Jonas Friis-Pedersen DEN
Kumite male junior -76kg Ludwig Ingemansson SWE
Kumite male junior +76kg Anders Frithiof DEN
Kumite female senior -55kg Bettina Alstadsæther NOR
Kumite female senior -61kg Emma Aronen FIN
Kumite female senior -68kg Gitte Helene Brunstad NOR
Kumite female senior +68kg Helena Kuusisto FIN
Kumite male senior -67kg Timm Neve DEN
Kumite male senior -75kg Jonas Pallesen DEN
Kumite male senior -84kg Joachim Viberg DEN
Kumite male senior +84kg Lauri Mengel EST
Kumite team female Finland FIN
Kumite team male Denmark DEN

Á ljósmyndinni má sjá Íslenska hópkataliðið sem vann til silfurverðlauna.  Ljósmynd Þorsteinn Yngi Guðmundsson

Í viðhenginu má sjá öll úrslit. Nordic Championships 2015_Result

About Helgi Jóhannesson