banner

Norðurlandameistaramótið

 

Norðurlandamótið í karate fór fram í Tartu í Eistlandi um helgina, það var það fjölmennasta frá upphafi með 333 skráningar og 303 keppendur, 21 manna hópur frá Íslandi fór á mótið þar af voru 16 keppendur.

Simon Nasser steig fyrstur Íslendinga á völl og tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn í -52 kg flokki cadet (14–15 ára). Hann er einnig Íslandsmeistari í sínum flokki.

Hópkatalið landsliðsins hlaut einnig titil Norðurlandameistara. Hópkata er þegar þrír keppendur framkvæma saman kata, röð fyrirfram ákveðinna tækna, þar sem samhæfing og nákvæmni skipta miklu máli. Það voru þeir Prince James, Þórður Jökull og Aron Huynh sem tóku gullið.

Þórður, Prince og Jakub Kobiela höfnuðu í þriðja sæti í sínum einstaklings flokkum í kata.

Þórður, sem er Íslandsmeistari, keppir í senior flokki og mun taka þátt í Evrópumóti fullorðinna sem fram fer í maí.

Eydís Magnea Friðriksdóttir náði öðru sæti í flokki senior kvenna í kumite (-61 kg). Eftir þrjá spennandi bardaga, sem Eydís sigraði, mætti hún Eistanum Li Lirisman sem hreppti gullverðlaunin. Eydís keppti einnig í kata og hafnaði í 5. sæti eftir þrjár virkilega góðar kata.

Einnig kepptu Embla Rebekka Halldórsdóttir og Prince í bæði kata og kumite, og varð Prince að hlaupa frá á milli bardaga til þess að taka við verðlaunum fyrir kata. Það er ekki algengt að sjá keppendur á svona háu stigi íþróttarinnar keppa í báðum greinum en þetta sýnir mikinn metnað þeirra þriggja gagnvart íþróttinni.

Í kumite tóku þau Embla og Saker Hassoun Nasser 3ja sæti í junior flokkum. Embla keppti meðal annars gegn Hönnuh Bath frá Danmörku, tvöföldum Evrópumeistara með bronsverðlaun á HM, sem sigraði flokkinn sannfærandi. Embla tapaði naumlega fyrir henni, en Bath vann aðra bardaga sína með yfirburðum, 8–0. Saker tapaði sínum fyrsta bardaga á refsistigum en rúllaði í gegnum uppreisnina.

Íslandsmeistarinn Hugi Halldórsson, sem er einn af fremstu keppendum landsins með brons medalíu frá EM U21 og silfur á Youth League heimsbikarmóti ungmenna, var á mótinu. Mikils var vænst af honum, en hann slasaðist í sínum fyrsta bardaga og gat ekki haldið áfram keppni. Hugi var fluttur á sjúkrahús og sendur í röntgenmyndatöku, en sem betur fer var aðeins um tognun á olnboga að ræða og á hann að vera heill fyrir Evrópumót sem fer fram eftir rúman mánuð.

 

Þau sem keppa á Evrópumótinu í maí eru Hugi, Eydís, Þórður og Samuel Josh Ramos. Samuel hafnaði í 5. sæti á Norðurlandamótinu.Undirbúningur fyrir mótið er nú í fullum gangi.

 

Ronja Halldórsdóttir formaður Karatesambandsins, sem kjörin var um miðjan febrúar, fyrsta konan og jafnframt sú yngsta sem sinnir því starfi var með í för. Hún sá um fararstjórn og sat sinn fyrsta fund á erlendri grundu með framkvæmdastjórn NKF(Nordic Karate Federation) og upplýsti formenn karatesambanda aðra norðurlanda um stöðu karate hér á landi.

Þjálfarar Íslenska landsliðsins eru Vilhjálmur Vilhjálmsson, kataþjálfari og Ruslan Sadikov, kumiteþjálfari, ásamt Halldóri Stefánssyni, aðstoðarþjálfara, fylgdu þeir liðinu alla leið.

Íslenskir dómarar á mótinu voru Helgi Jóhannesson og Jóhannes Felix Jóhannesson.

 

Íslenskir keppendur voru:

Aguiad Simon Hassoun Nasser ​ – 1. sæti  -52kg cadet kumite

Eydís Magnea Friðriksdóttir​​ – 2. sæti -61kg senior kumite & 5. sæti senior kata

Þórður Jökull Henrysson – ​​3. sæti senior kata

Embla Rebekka Halldórsdóttir​ – 3. sæti -59kg junior kumite & 5. sæti junior kata

Prince James Carl Caamic​​ – 3. sæti junior kata & 5. sæti -55kg junior kumite

Saker Hassoun​​ Nasser – 3. sæti -61kg junior kumite

Jakub Kobiela – 3. sæti junior k​​ata

Samuel Josh Ramos​​​ – 5. sæti -67kg senior kumite

Aron Builam Jónsson – 5. sæti ​​​-68kg junior kumite

Darren Chidiebere Uzo – 7. sæti -76kg junior ​​kumite

Gabríel Sigurður Pálmason​​

Hugi Halldórsson​​​

Filip Leon Kristóferson​​

Óskar Ingi Agnesar Gunnarsson​

Albert Óli Vilhálmsson

Hópkatalið ​​Prince – Þórður – Aron

 

About Ronha Halldórsdóttir