banner

Nýr landsliðsþjálfari í kumite og framlengdur samningur við landsliðsþjálfara í kata

Karatesamband Íslands hefur gengið frá ráðningu Anouar Bougrine sem nýs landsliðsþjálfara í kumite.

Samningurinn var undirritaður í lok vel heppnaðrar æfingahelgar og hefur Anouar störf þann fyrsta júlí næstkomandi en næsta opna æfingahelgi með Anouar verður haldin um miðjan ágúst.

Jafnframt hefur Karatesambandið framlengt samning sinn við Vilhjálm Vilhjálmsson, landsliðsþjálfara í kata. Vilhjálmur hefur á undanförnum árum unnið afar öflugt starf með landsliðinu.

Karatesambandið hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Vilhjálm og býður Anouar velkominn til starfa. Með reynslu þeirra og þekkingu skapast enn betri tækifæri til að efla landsliðsstarfið og styðja við áframhaldandi framfarir íslensks karate.

Karatesamband Íslands óskar Anouar og Vilhjálmi velfarnaðar í sínum mikilvægu hlutverkum.



 

 

About Ronha Halldórsdóttir