banner

Elías og Svana Katla Íslandsmeistarar í kata

KAI_IM_senior_kata_Svana_EliasÍ dag, laugardaginn 7.mars, fór fram Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata.  Mótið var haldið í íþróttahúsi Hagaskóla í umsjón karatefélagsins Þórshamars.  Góð mætinga var á mótinu og um 30 keppendur og 6 lið frá 6 félögum skráð til leiks, þar af allt landsliðsfólkið okkar í kata.  Ljóst var að nýr meistari yrði krýndur í kata karla þar sem meistari síðasta árs, Kristján Helgi Carrasco, er erlendis.  Einnig var ljóst að krýndir yrðu nýir meistarar í hópkata karla þar sem meistarar síðustu 4 ára frá Breiðablik myndu ekki mæta til leiks.

Í kata karla vann Elías Snorrason, KFR, Boga Benediktsson, Þórshamri, í spennandi og harðri keppni þar sem Elías framkvæmd kata sem heitir Suparinpei á móti kata hjá Boga sem heitir Gojushiho Sho. Er þetta í 3ja sinn sem Elías verður Íslandsmeistari en hann vann einnig 2010 og 2013.  Eins og fram kom þá var ljóst að nýir meistarar yrðu krýndir í hópkata karla  og endaði keppnin með því að sveit Þórshamars með þeim Boga Benediktssyni, Daníel P. Axelssyni og Sæmundi Ragnarssyni  sigruðu og eru því Íslandsmeistarar í hópkata karla.

Í kvennaflokki var spennan ekki síðri þar sem allar landsliðskonur okkar voru mættar sem og unglingalandsliðið sem var komið með keppnisrétt á mótinu, auk þess sem fyrrum Íslandsmeistari 2008-1010, Hekla Helgadóttir, var mætt til leiks aftur eftir nokkurt hlé.  Í úrslitum áttust við sömu landsliðskonurnar og í fyrra, Kristín Magnúsdóttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir, báðar úr Breiðablik. Þær stöllur hafa reyndar átt við í mörg ár, allt frá unglingsárum.  Svana Katla sýndi kata Anan og Kristín kata Gankaku, í ár fór svo að Svana Katla vann sigur eftir að hafa verið í 2.sæti 3 ár í röð.  Þær stöllur Svana Katla og Kristín ásamt Katrínu Kristinsdóttur unnu svo hópkata kvenna og vörðu þar með titil sinn síðan í fyrra, er þetta 4.árið í röð sem sveit Breiðabliks með þeim Kristínu og Svönu vinnur hópkata kvenna. Svana Katla er því tvöfaldur Íslandsmeistari í kata.

Þegar öll stigin voru tekin saman stóð karatefélagið Þórshamar uppi sem sigurvegari með 17 stig og er því Íslandsmeistari félaga í kata fullorðinna.  Mótsstjóri var Þrúður Sigurðar og yfirdómari Helgi Jóhannesson.

Næstu verkefni landsliðsfólks okkar í kata er Opna sænska meistaramótið í Malmö 21.mars og Norðurlandameistaramótið sem haldið verður hér á Íslandi 11.apríl næstkomandi.

Úrslit dagsins

Kata kvenna
1.Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik
2.Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik
3.Hekla Helgadóttir, Þórshamar
3.María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar

Kata karla
1.Elías Snorrason, KFR
2.Bogi Benediktsson, Þórshamar
3.Sæmundur Ragnarsson, Þórshamar
3.Sverrir Magnússon, KFR

Hópkata kvenna
1.Breiðablik, Katrín, Kristín, Svana Katla
2.Þórshamar, Diljá, Hekla, María Helga
3.Breiðablik, Arna Katrín, Erla Kristín, Laufey Lind

Hópkata karla
1.Þórshamar, Bogi, Daníel P.,Sæmundur
2.KFR, Elías, Sverrir, Vilhjálmur
3.Þórshamar, Birkir, Brynjar Marinó, Magnús

Heildarstig félaga
1.Þórshamar, 17 stig
2.Breiðablik, 13 stig
3.KFR, 8 stig

KAI_IM_senior_kata_einstaklings_kvk

 

 

 

 

 

 
Verðlaunahafar í kata kvenna, frá vinstri Kristín, Svana Katla, Hekla og María Helga.

KAI_IM_senior_kata_einstaklings_kk

 

 

 

 

 
Verðlaunahafar í kata karla, frá vinstri Sæmundur, Sverri, Elías og Bogi.

KAI_IM_senior_kata_hopkata_kvk

 

 

 

 

 

 
Verðlaunahafar í hópkata kvenna, frá vinstri Breiðalbik B, Breiðablik A og Þórshamar A.

KAI_IM_senior_kata_hopkata_kk

 

 

 

 

 

 

 

Verðlaunahafar í hópkata karla, frá vinstri Þórshamar D, Þórshamar A og KFR

 

About Helgi Jóhannesson