banner

Nýr landsliðsþjálfari í kumite

KAI_2016_nyr_landslidsthjalfari_kumiteÍ dag, laugardaginn 27.febrúar, var undirritaður samningur við Ingólf Snorrason um að Ingólfur tæki að sér landsliðsþjálfun í kumite. Undirritunin átti sér stað þegar þinghlé var gert á Karateþingi sem fór fram í Íþróttamiðstöð ÍSÍ.  Ingólfur Snorrason þarf vart að kynna fyrir karatefólki, enda einn sigursælasti keppandi landsins, Ingólfur vann til 20 Íslandsmeistaratitla, ýmist í +80kg flokki eða opnum flokki í kumite auk meistaratitla í liðkeppni. Ingólfur var fastamaður í landsliði Íslands í kumite til fjöldra ára, keppti á fjölda alþjóðlegra móta, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramót, með góðum árangri.

Karatesamband Íslands býður Ingólf velkominn til starfa.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Reinharð Reinharðsson, Formann Karatesambandisins, skrifa undir samninginn við Ingólf Snorrason.

About Helgi Jóhannesson