banner

María Helga og Aron Anh eru karatefólk ársins 2016

Stjórn Karatesambands Íslands hefur útnefnt eftirfarandi karatekonu og karatemann ársins 2016

Karatekona ársins: María Helga Guðmundsdóttir, Karatefélagið Þórshamar
María Helga hefur verið sigursæl karatekona síðustu ár, keppir bæði í kata og kumite. Náði þeim frábæra árangri að vinna til silfurverðlauna á Norðurlandameistaramóti auk þess að vera Bikarmeistari kvenna.  María Helga hefur keppt erlendis með landsliðinu og náð góðum árangri, verið m.a. í verðlaunasætum á erlendum mótum eins og sést á árangri hennar.

María Helga er núna í 223.sæti á heimslista Alþjóða Karatesambandsins (WKF) í kumite kvenna -55kg af 438 skráðum keppendum.

Helstu afrek Maríu Helgu á árinu 2016 voru;

  1. Bikarmeistari Kvenna 2016
  2. Silfur í kumite kvenna -55kg, Norðurlandameistaramót
  3. Íslandsmeistari í -61kg flokki
  4. Brons á Íslandsmeistaramóti í kumite opnum flokki kvenna
  5. Brons á Íslandsmeistaramóti í kata kvenna
  6. Gull í kumite -55kg, Swedish Karate open
  7. Brons í kata kvenna, Swedish Karate open
  8. Silfur í -61 kg, Czezch Karate Open Cup
  9. Brons í opnum flokki, Czezch Karate Open Cup
  10. Gull í liðakeppni, Czezch Karate Open Cup
  11. Brons í kata kvenna, RIG

María Helga er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Karatemaður ársins: Aron Anh Ky Huynh, Karatedeild ÍR
Aron Anh er einn efnilegasti karatemaður sem hefur komið fram síðustu ár, er jafnvígur á keppni í kata og kumite. Aron Anh er núverandi Bikarmeistari á sínu fyrsta keppnisári í fullorðinsflokki auk þess að vera Íslandsmeistari unglinga bæði í kata og kumite. Aron Anh er einnig bikarmeistari unglinga í kata ásamt því að vera í verðlaunasætum bæði á unglinga og fullorðinsmótum í kata og kumite.

Helstu afrek Aron Anh á árinu 2016 voru;

  1. Bikarmeistari karla 2016
  2. Íslandsmeistari í Kumite pilta 16-17 ára -68kg
  3. Íslandsmeistari í kata pilta 16-17 ára
  4. Bushidobikarmeistari í Kata 16-17 ára unglinga
  5. Silfur á Íslandsmeistaramóti í kumite -67kg flokki
  6. Brons á Íslandsmeistaramóti í kata karla
  7. 3ja sæti í Bushidobikarmótaröð í Kumite pilta 16 og 17 ára
  8. Brons á Íslandsmeistaramóti í hópkata táninga 16 og 17 ára
  9. Gull í Kata Junior karla, RIG

Aron Anh er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

About Helgi Jóhannesson