banner

Bikarmót

Almennar reglur.
1. gr. Árlega skal halda Bikarmót KAÍ í kumite og kata. Hvert bikartímabil er almanaksárið. Bikarmótinu skal skipta í einn, tvo, þrjá eða fjóra hluta fyrirfram. Keppt skal í tveimur flokkum í hverjum hluta mótsins í kumite, opnum flokki kvenna og opnum flokki karla og tveimur flokkum í kata, flokki karla annars vegar og flokki kvenna hins vegar.

2. gr. Eftir hvern hluta skal gefa 10 stig fyrir fyrsta sæti, 8 stig fyrir annað sæti, 6 stig fyrir tvö þriðjasæti og 3 stig fyrir að tapa bardaga um þriðja sæti. Ef keppendur eru 3 keppa allir við alla og skal gefa 10 stig fyrir fyrsta sæti, 8 stig fyrir annað sæti og 6 stig fyrir þriðja sæti. Ef einungis einn keppandi mætir í tilteknum flokki skal hann fá 10 stig, enda hafi hann farið ósigraður frá móti. Hægt er að keppa bæði í kata og kumite og leggjast þá stigin úr greinunum tveim saman. Eftir að öllum Bikarmótum tímabilsins er lokið skulu stigahæsta konan og stigahæsti karlinn í samanlögðum greinum verða útnefnd Bikarmeistarar KAÍ. Þeim tveimur sem koma næst þeim að stigum í flokki karla og flokki kvenna skal veita önnur og þriðju verðlaun. Séu tveir einstaklingar jafnir að stigum í lok bikarkeppninnar vinnur sá er oftar var í fyrsta sæti. Sé enn jafnt vinnur sá er oftar hefur verið í öðru sæti og svo framvegis.

3. gr. Lágmarksaldur keppenda á bikarmótum skal vera 16 ár og skal miða við fæðingarár.

4. gr. Þátttökufélagi er skylt að tilnefna stafsmenn og dómara í hlutfalli við fjölda skráðra keppenda á mót. Sjá nánar reglur um innlend mót.

5. gr. Handahafar farandbikara skulu skila þeim til mótanefndar eigi síðar en viku fyrir síðasta mót.

6. gr. Að öðru leyti skal fylgja reglugerð um Íslandsmeistaramót í Karate og um innlend mót.

Samþykkt af stjórn KAÍ í ágúst 2017. Síðast breytt 9. janúar 2026.