banner

Landsliðið keppir á HM unglinga

Heimsmeistaramótið í karate Undir 21 árs, er haldið í Guadalajara, Spáni, og hefst á morgun 7.nóvember og stendur til 10.nóvember.  Íslands sendir 5 keppendur til keppni bæði í kumite og í kata.  Keppt er bæði í Junior (16-17 ára) og U21 árs flokki (18-21 árs).  Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland sendir keppendur á HM U21 árs en áður hefur Ísland tekið þátt í Heimsmeistaramóti fullorðinna.
Á morgun fimmtudag hefst keppni í U21 flokkum en á föstudaginn 8.nóvember hefst keppni í Junior flokkum.
Keppnishópur okkar er skipaður;
Sindri Pétursson -76kg Junior
Jóhannes Gauti Óttarsson -78kg U21
Kristján Helgi Carrasco -68kg U21
Elías Snorrason – Kata U21
Aðalheiður Rósa Harðardóttir – Kata U21

Auk þess er með í för Gunnlaugur Sigurðsson, landsliðsþjálfari.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn, frá vinstri Gunnlaugur Sigurðsson, Elías Snorrason, Jóhannes Gauti Óttarsson, Sindri Pétursson, Aðalheiður Rósa Harðardóttir og Kristján Helgi Carrasco.KAI_HM2013_U21_hopur

About Helgi Jóhannesson