banner

Nýir dómarar í kata

Karatesambandið stóð fyrir dómaranámskeiði í kata 7.febrúar og sá Helgi Jóhannesson, EKF Referee, um námskeiðið, sem haldið var í veitingasal Smárans og í sal Karatedeildar Breiðabliks, Kópavogi. Ágætis þátttaka var á námskeiðið þar sem farið var yfir WKF keppnisreglur í kata. Af þeim sem sóttu námskeiðið, fóru 3 í skriflegt próf og 2 í verklegt próf.

Þeir sem fengu ný réttindi, Kata B-dómari eru;
Elías Snorrason, KFR
María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar

About Helgi Jóhannesson