banner

Breiðablik íslandsmeistari félaga í kata unglinga, 6 árið í röð

Sunnudaginn 9.febrúar, fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í kata.  Mótið var mjög vel sótt og mikil aukning var á keppendum, í einstaklingsflokkum tóku yfir 100 keppendur þátt og 20 lið í liðakeppni frá 9 félögum.  Bestum árangri náðu tveir einstaklingar sem urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar en þau unnu sína einstaklingsflokka og voru einnig í sigurliði síns félags í hópkata.  Þetta voru þau Snorri Beck Magnússon, Breiðablik og Bogi Benediktsson, Þórshamri.  Þess má geta að elstu unglingarnir eru margir hverjir að fara á opna sænska meistaramótið í kata sem fer fram í Malmö 23.mars næstkomandi en sami hópur mun einnig keppa á Íslandsmeistaramóti Fullorðinna í kata sem fer fram 8.mars næstkomandi.  Breiðablik varð svo Íslandsmeistari félaga þegar heildarstigin voru lögð saman með 39 stig, en Breiðablik varði með því Íslandsmeistaratitil félaga frá því í fyrra og er þetta 6 árið í röð sem Breiðablik vinnur félagstitilinn.  Agnar Helgason var mótsstjóri og yfirdómari var Willem C. Verheul.

Hér er svo list yfir alla Íslandsmeistara unglinga í kata; 
Kata piltar 12 ára, Ómar Muhammed Hani, Þórshamar
Kata stúlkur 12 ára, Freyja Stígsdóttir, Þórshamri
Kata piltar 13 ára, Snorri Beck Magnússon, Breiðablik
Kata stúlkur 13 ára, Sigríður Hagalín Pétursdóttir, KFR
Kata piltar 14 ára, Jónatan Baldvinsson, Þórshamar
Kata stúlkur 14 ára, Mary Jane Padua Rafael, Víkingur
Kata piltar 15 ára, Kári Haraldsson, Afturelding
Kata stúlkur 15 ára, Arna Katrín Kristinsdóttir, Breiðablik
Kata piltar 16-17 ára, Bogi Benediktsson, Þórshamar
Kata stúlkur 16-17 ára, Katrín Kristinsdóttir, Breiðablik
Hópkata táninga 12 og 13 ára, Viktor Steinn Sighvatsson, Óttar Finnsson, Guðjón Már Atlason, Fjölnir
Hópkata táninga 14 og 15 ára, Díana Ýr Reynisdóttir, Snorri Beck Magnússon, Þorsteinn Björn Guðmundsson, Breiðablik
Hópkata táninga 16 og 17 ára, Bogi Benediktsson, Eiríkur Örn Róbertsson, Sæmundur Ragnarsson, Þórshamar

KAI_2014_IMU_islandsmeistarar
Íslandsmeistarar Unglinga mynd, efri röð frá vinstri; Mary, Díana, Kári, Arna, Eiríkur, Sæmundur, Katrín, Bogi, Jónatan. Neðri röð frá vinstri; Freyja, Omar, Sigríður, Snorri, Þorsteinn, Guðjón, Óttar og Viktor.
Seinna um daginn fór svo fram Íslandsmeistara barna í kata.  Yfir 160 krakkar og 40 lið mættu til leiks.  Þegar uppi var staðið varð Karatedeild Víkings Íslandsmeistari félaga með 22 stig.  Agnar Helgason var mótsstjóri og yfirdómari var Willem C. Verheul.

Hér er svo listi yfir alla Íslandsmeistara barna í kata;
Kata barna 8 ára og yngri, Anna Halina Koziel, KFR
Kata barna 9 ára, Hugi Halldórsson, KFR
Kata barna 10 ára, Tómas Pálmar Tómasson, Breiðablik
Kata barna 11 ára, Kristrún Birgisdóttir, Víkingur
Hópkata barna 9 ára og yngri, Vincent Loui P. Rafaell, Agatha Ylfa Ólafsdóttir, Daníel Sean Hayes, Víkingur
Hópkata barna 10-11 ára, Tómas Aron Gíslason, Tómas Pálmar Tómasson, Daníel Dagur Bogason, Breiðablik

KAI_IMB_2014_islandsmeistarar

Íslandsmeistarar barna mynd, efri röð frá vinstri; Hugi, Tómas Pálmar, Daníel Dagur, Tómas Aron, Kristrún. Neðri röð frá vinstri; Anna, Vincente, Agatha og Daníel.

Í viðhengjum má finna öll úrslit frá mótunum tveimur:
Íslandsmeistaramót unglinga í KATA 2014_úrslit
Íslandsmeistaramót barna í kata 2014_úrslit

About Helgi Jóhannesson