banner

Kristján Helgi með Gull í Malmö

KAI_2014_Malmo_Open_Telma_Kristjan
Kristján Helgi Carrasco vann til gullverðlauna á Opna sænska karatemótinu, sem fór fram í gær laugardaginn 22.mars í Malmö Svíþjóð.  Kristján Helgi vann fyrstu tvær viðureignir sínar nokkuð sannfærandi og átti að mæta hollendingnum Nick Gerrese í úrslitum í -67kg flokki.  Nick hafði meiðst illa í undanúrslitum og gaf því úrslitabardagann við Kristján Helga sem stóð þá eftir sem sigurvegari.  Telma Rut Frímannsdóttir átti einnig góðan dag í Malmö í gær.  Hún keppti í -68kg flokki í kumite, þar sem hún sigraði fyrstu tvo andstæðinga og mætti Gittu Brundstad frá Noregi í úrslitum.  Eftir jafna og skemmtilega viðureign þá stóð sú norska uppi sem sigurvegarinn í flokkinum.  Þessi niðurstaða gefur góða fyrirheit fyrir næstu tvö erlendu verkefnin sem Kristján Helgi og Telma Rut taka þátt í, sem eru Norðurlandameistaramótið í karate sem verður í Riga Lettlandi 12.apríl og Evrópumeistaramótið sem fer fram í Tampere Finnlandi 1-5.maí næstkomandi.

Fleiri landsliðsmenn í karate kepptu í Malmö í gær, Ólafur Engilbert Árnason keppti í flokki unglinga -68kg og stóð sig vel.  Eftir að hafa unnið 2 viðureignir þá tapaði hann naumlega í undanúrslitum og aftur í viðureigninni um 3ja sætið, þegar mótherji hans náði stigi 2 sekúndum fyrir lok bardagans sem hafði fram að þeim tímapunkti verið jafn. Eldri katakeppendur okkar, Heiðar Benediktsson, Kristín Magnúsdóttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir áttu ekki eins góðan dag og kumitekeppendurnir, flest duttu þau út eftir 2.umferð.  Í yngri unglingaflokki keppti Laufey Lind Sigþórsdóttir sem vann fyrstu 2 viðureignirnar í flokki cadet (14-15ára) en tapaði svo fyrir sigurvegaranum í 3ju umferði. Í flokki cadetta var ekki notað uppreisnarkerfi svo Laufey fékk ekki möguleika á viðureign um 3ja sætið.  Í sama flokki keppti Arna Katrín Kristinsdóttir sem vann sína fyrstu viðureign en datt svo út í 2.umferð.

Fyrr um morguninn var keppt í barnaflokkum þar sem unnust 2 silfur og 4 brons, þar sem Viktor Steinn Sighvatsson vann silfur í flokki 12ára drengja og Kristrún Bára Guðjónsdóttir brons í kata 10ára stúlkna.

Heildarverðlaun
Gull, Kristján Helgi Carrasco, kumite -67kg
Silfur, Telma Rut Frímannsdóttir, kumite -68kg
Silfur, Viktor Steinn Sighvatsson, kata 12ára drengja
Silfur, Viktor, Óttar, Guðjón, hópkata mix 12-13ára
Brons, Kristrún Bára Guðjónsdóttir, kata 10ára stúlkna
Brons, Þorsteinn, Snorri, Hilmar, hópkata mix 12-13ára
Brons, Móey, Freyja, Guðbjörg, hópkata mix 12-13ára
Brons, Daníel, Tómas, Eiríkur, hópkata mix 10-11ára

KAI_2014_Malmo_Open_Kristjan_a_palli KAI_2014_Malmo_Open_Telma_a_palli

About Helgi Jóhannesson