banner

Ágúst Heiðar í 7-8.sæti á EM í karate

KAI_2016_Agust_Heidar_SveinbjornssonÍ dag var fyrsti dagurinn á Evrópumeistaramóti unglinga og U21 í karate sem fer fram í Limassol, Kýpur. Ísland átti 3 keppendur í dag, Bogi Benediktsson sem keppti í kata karla U21, Iveta Chavdarova Ivanova sem keppti í kumite Cadet -54kg og svo Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson sem keppti í Kumite Caded -70kg.

Bogi keppti fyrstur okkar manna, lenti á móti Alexander Pagot frá Svíþjóð í fyrstu umferð, Alexander hafði betur en datt svo út í annarri umferð og því möguleikar Boga á uppreisn farnir. Næsti keppandi okkar var Iveta sem mætti fyrir Assia Oukhattou frá Frakklandi í fyrstu umferð. Assia vann Ivetu en þar sem hún datt út i næstu umferð þá var keppni Ivetu lokið.

Síðastur okkar keppanda í dag var Ágúst Heiðar. Ágúst Heiðar sat hjá í fyrstu umferð, en mætti svo Jan Bruist frá Hollandi í 16 manna úrslitum í skemmtilegri viðureign.  Ágúst sótti vel og náði góðu Ura Mawashi geri í höfuð Jan, fékk þá 3 stig og urðu það lok viðureignarinnar , öruggur sigur okkar manns. Í átta manna úrslitum mætti Ágúst Heiðar Konstantinos Mastrogiannis frá Grillandi, en sá gríski marði sigur 1-0. Þar sem Konstantinos vann sinn riðill og fór í úrslit um Evrópumeistaratitilinn, þá fékk Ágúst Heiðar uppreisn og möguleika á að keppa um 3ja sætið. Í öðrum bardaga uppreisnar mætti Ágúst Heiðar Marc Scholl frá Þýskalandi. Sá þýski pressaði mjög vel en ágúst varðist og sóttu þeir til skiptis en hvorugur þeirra náði stigum og fór svo að bardaginn endaði 0-0. Þá er gripið til dómaraúrskurðar þar sem allir 5 dómarar gefa öðrum hvorum keppandanum sigur, var þeim þýska dæmdur sigur.  Ágúst Heiðar endaði því í 7-8.sæti í kumite cadet -70kg á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti, frábær árangur hjá þessum unga og efnilega karatemanni.

Á morgun laugardag munu Edda Kristín, Katrín Ingunn og Máni Karl keppa, á sunnudeginum keppir svo Ólafur Engilbert.

KAI_EM_Junior_U21_2016_urslit_cadet_under70kg

Smellið á myndina til að sjá lokastöðu í flokki cadet male -70kg.

About Helgi Jóhannesson