banner

Elías og Svana Katla Íslandsmeistarar í kata fullorðinna

KAI_IM_kata_senior_2016_Svana_EliasÍ dag, laugardaginn 5.mars, fór fram Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata.  Mótið var haldið í íþróttahúsi Hagaskóla í umsjón karatefélagsins Þórshamars.  Góð mæting var á mótinu, um 25 keppendur auk 5 hópkataliða frá 5 félögum voru skráð til leiks, þar af allt landsliðsfólkið okkar í kata.  Allir Íslandsmeistararnir frá því í fyrra mættu til að verja titla sína.

Í kata karla mættust í úrslitum, annað árið í röð, þeir Elías Snorrason úr KFR og Bogi Benediktsson úr Þórshamri. Báðir höfðu sýnt frábærar kata í undankeppninni og unnið alla sína andstæðinga svo ljóst var að það stefndi í spennandi og harðri keppni á milli þeirra. Elías framkvæmdi kata sem heitir Suparinpei á móti kata hjá Boga sem heitir Sochin, svo fór að Elías vann viðureignina og varð því Íslandsmeistari í kata karla annað árið í röð.  Er þetta í fjórða sinn sem Elías verður Íslandsmeistari.  Hópkatalið Þórshamar var mætt til að verja titil sinn síðan í fyrra og unnu þeir Bogi Benediktsson, Sæmundur Ragnarsson og Ásmundur Ísak Jónsson félaga sína í Þórshamri í úrslitum.

Í kvennaflokki var spennan ekki síðri þar sem allar landsliðskonur okkar voru mættar sem og unglingalandsliðið sem var komið með keppnisrétt á mótinu.  Í úrslitum áttust við sömu landsliðskonurnar og síðustu 3 ár þær Kristín Magnúsdóttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir, báðar úr Breiðablik. Þær stöllur hafa reyndar ást við í mörg ár, allt frá unglingsárum.  Svana Katla sýndi kata Anan og Kristín kata Empi. Báðar tvær sýndu frábæra útfærsla á þessum kata og stóð Svana Katla uppi sem sigurvegari annað árið í röð. Þær stöllur Svana Katla og Kristín ásamt Örnu Katrínu Kristinsdóttur unnu svo hópkata kvenna og vörðu þar með titil sinn síðan í fyrra, er þetta 5.árið í röð sem sveit Breiðabliks með þeim Kristínu og Svönu vinnur hópkata kvenna. Svana Katla er því tvöfaldur Íslandsmeistari í kata.

Þegar öll stigin voru tekin saman stóð karatefélagið Þórshamar uppi sem sigurvegari með 19 stig og er því Íslandsmeistari félaga í kata fullorðinna.  Mótsstjóri var Valgerður H. Sigurðardóttir og yfirdómari Helgi Jóhannesson.

Næstu verkefni landsliðsfólks okkar í kata er sterkt sænskt katamót 12.mars og Norðurlandameistaramótið sem haldið verður í Danmörku 9.apríl næstkomandi.

Úrslit dagsins

Kata kvenna
1.Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik
2.Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik
3.Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik
3.María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar

Kata karla
1.Elías Snorrason, KFR
2.Bogi Benediktsson, Þórshamar
3.Arnar Júlíusson, KFV
3.Aron Anh Ky Huynh, ÍR

Hópkata kvenna
1.Breiðablik, Arna Katrín, Kristín, Svana Katla
2.Þórshamar, Diljá, Edda, María Helga
3.Þórshamar, Ólöf Azia, Jóna

Hópkata karla
1.Þórshamar, Bogi,Sæmundur, Ásmundur Ísak
2.Þórshamar, Birkir, Brynjar, Jónas

Heildarstig félaga
1.Þórshamar, 19 stig
2.Breiðablik, 12 stig
3.KFR, 3 stig
Á efri myndinni má sjá Svönu og Elías með verðlaun sín.  Á seinni myndinni má sjá alla Íslandsmeistara dagsins, frá vinstri Bogi, Ásmundur Ísak, Sæmundur, Arna Katrín, Kristín, Svana og Elías.

KAI_IM_kata_senior_2016_sigurvegarar

About Helgi Jóhannesson