banner

Dómaranámskeið í kumite 2016

wkf_logoKaratesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite föstudaginn 21.október næstkomandi kl. 19:00, í Ráðstefnusal-D í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs þar sem farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, en fyrirlesturinn tekur um 2 klst. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 22.október á meðan Íslandsmót unglinga í kumite stendur yfir.
Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/). Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 9.0.

Vinsamlegast skráið þátttakendur hér; Skráningarform

About Helgi Jóhannesson