banner

KAÍ Dómaranámskeið í Kata

Karatesamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Kumite fimmtudaginn 15. febrúar næstkomandi kl. 18:00 í fyrirlestrarsal C í íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Reykjavík.
Kristján Ó. Davíðsson, NKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF katahlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 17. febrúar á meðan GrandPrix-Bikarmót stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Vinsamlegast skráið mætingu, hvort sem það er einungis á fyrirlestur eða þá í próf.

https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScBHQbBkyirmDs2uhYj_iQvlnvLUqYj7furwJlT2t_QJyQzxg/viewform?vc=0&c=0&w=1&flr=0

About Reinhard Reinhardsson