banner

Íslandsmeistaramót unglinga í kumite

Karatesamband_Islands_logo_webÍslandsmeistaramót unglinga í kumite fer fram laugardaginn 22.október í Fylkissetrinu, Norðlingaholti í umsjón karatedeildar Fylkis. Um 60 unglingar á aldrinum 12-17 ára eru skráðir til keppnis frá 9 félögum, þar sem keppt er í drengja og stúlknaflokkum, skipt upp eftir aldri keppanda.

Mótið hefst kl. 10:00 þar sem keppt er á 2 völlum en úrslit hefjast stundvíslega kl.12:20, mótslok verða svo kl.13:30 með verðlaunaafhendingu.

Úrslit Tími
Kumite drengja 12 ára 12:20
Kumite telpna 12 ára. 12:25
Kumite drengja 13 ára. 12:30
Kumite pilta 14 og 15 ára -63kg 12:35
Kumite pilta 14 og 15 ára +63kg 12:40
Kumite stúlkna 14 og 15 ára 12:45
Kumite stúlkna 16 og 17ára 12:50
Kumite pilta 16 og 17 ára -68kg 12:55
Kumite pilta 16 og 17 ára +68kg 13:00

About Helgi Jóhannesson