banner

32. Karateþing

32. Karateþing var haldið sunnudaginn 17. febrúar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Um 25 fulltrúar karatefélaganna á landinu tóku þátt í þingstörfunum. Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, var gestur á þinginu.

Stjórn karatesambandsins hafði á fundi sínum samþykkt að heiðra tvo karatemenn með gullmerki sambandsins og eru það þeir Vicente Carrasco og Ólafur Helgi Hreinsson. Vicente hefur starfað ötullega að uppbyggingu íþróttarinnar í 32 ár og stofnað 5 karatedeildir á ferli sínum. Hann hefur átt farsælan feril sem þjálfari og átt félagslið á toppnum árum saman. Ólafur Helgi hefur verið félagsmaður Karatefélags Reykajvíkur í yfir 30 ár og verið formaður þess síðustu 10 ár. Hann var landsliðsmaður, síðar alþjóðlegur dómari og nú síðast einbeitt sér að barna og unglingaþjálfun með frábærum árangri.

Vicente, Ólafur og Reinharð

Á þinginu var einnig notað tækifærið og skrifað undir endurnýjaðan samning við landsliðsþjálfarann í kumite, Ingólf Snorrason. Við sama tækifæri var skrifað undir samning við nýjan unglingalandsliðsþjálfara, Halldór Stefánsson.

Ingólfur og ReinharðHalldór og Reinharð

Nokkur mál lágu fyrir þinginu, Afreksstefna KAÍ fyrir 2019 – 2022, fjárhagsáætlun 2019 auk tillagna um fjölda réttindadómara á mótum, að skylda félögin til að tilnefna nefndarmann í mótanefnd KAÍ og að stjórn KAÍ fá heimild til að greiða formönnum nefnda þókknun.

Nokkrar umræður urðu um Afreksstefnu KAÍ og tók hún lítilsháttar breytingum í umfjöllun allsherjarnefndar. Hún var síðan samþykkt með áorðnum breytingum.

Miklar umræður urðu um aðar tillögur í þingnefndum og var samþykkt eftir umræður breytt fjárhagsáætlun 2019, ítrekuð var tillaga um skipun nefndarmanna í mótanefnd og fjölgun réttindadómara á mótum. Þá var einnig samþykkt tillaga að stjórn KAÍ fengi heimild til að greiða formönnum nefnda þókknun fyrir störf þeirra.

Reinharð Reinharðsson var endurkjörinn formaður sambandsins og nýr stjórnarmaður komu inn í aðalstjórn, Elías Guðni Guðnason. Tveir nýir stjórnarmaður kom inn í varastjórn, þær Magnea Rós Axelsdóttir og Diljá Guðmundardóttir.

Ævar, Reinharð, María, María Helga, Rut, Magnea, Diljá og Guðni

About Reinhard Reinhardsson