banner

Svana Katla Þorsteinsdóttir og Elías Snorrason Íslandsmeistarar í kata

Íslandsmeistararnir í kata

Íslandsmeistaramótið í kata fór fram laugardaginn 9. mars og var haldið í Íþróttahúsi Menntavísindasviðs HÍ. Góð mæting var á mótinu, um 20 keppendur auk 5 hópkataliða, 3 í kvennaflokki og 2 í karlaflokki, voru skráð til leiks, þar af allt landsliðsfólkið okkar í kata.

Í úrslitum í kata kvenna mættust þær Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki og Freyja Stígsdóttir, Þórshamri og átti Svana Katla titil að verja.

Í úrslitum í kata karla áttust við þeir Elías Snorrason, KFR, Íslandsmeistari í kata frá í fyrra og Aron Ahn Ky Hyunh, ÍR. Var viðureign þeirra hnífjöfn og fór 3-2 að mati dómara.

Svana Katla Þorsteinsdóttir, Karatedeild Breiðabliks, varð íslandsmeistari í kata kvenna fimmta árið í röð og Elías Snorrason, Karatefélagi Reykjavíkur, hélt Íslandsmeistaratitlinumn í kata karla. Var það í sjötta sinn sem hann verður Íslandsmeistari í kata karla á síðustu níu árum.

Svana Katla Þorsteinsdóttir og Elías Snorrason.

Þórshamars tefldi til leiks þremur hópkataliðum í liðakeppni kvenna og endurheimti liðið Íslandsmeistaratitilinn frá því í hittiðfyrra.

Hópkatalið Þórshamars í liðakeppni karla varði titilinn frá fyrra ári. Eru þeir því Íslandsmeistarar fjórða árið í röð.

Þórshamar sigraði í stigakeppni félaga á mótinu, með 25 stig, Breiðablik varð í öðru sæti með 5 stig og Karatefélag Reykjavíkur í þriðja sæti með 3 stig.


Yfirdómari á mótinu var Kristján Ó. Davíðsson og mótsstjóri María Jensen.

About Reinhard Reinhardsson