banner

Norðurlandameistaramótið í karate

Norðurlandameistaramótið í karate fer fram í Laugardalshöllinni helgina 13.-14. apríl næstkomandi. Flestallt færasta karatefólk Íslands og Norðurlandanna er skráð til leiks. Keppt er í einstaklings- og liðakeppni bæði í kata og kumite í aldursflokkum fullorðinna, kadetta (14-15 ára) og juniora (16-17 ára).

Ísland teflir fram fjölmennu liði 30 keppenda, þar á meðal öllum ríkjandi Íslandsmeisturum fullorðinna í kata og kumite. Karen Thuy Duong Vu á Norðurlandameistaratitil að verja í kumite -48 kg junior-stúlkna. Auk hennar unnu bæði Eydís Magnea Friðriksdóttir og Davíð Steinn Einarsson til verðlauna í fyrra og verður spennandi að sjá frammistöðu þeirra, en Eydís keppir bæði í kata og -68 kg kumite kvenna og Davíð Steinn í kumite -76 kg junior-pilta. Hugi Halldórsson vann Norðurlandameistaratitil í kumite juniora árið 2021 en keppir nú í -84 kg flokki karla og verður spennandi að sjá hann etja kappi við marga af reyndustu mönnum Norðurlanda. Þá snýr Ólafur Engilbert Árnason aftur í landsliðið eftir nokkurra ára hlé og keppir í -75 kg karlaflokki. Ólafur býr og æfir í Danmörku og varð Danmerkurmeistari í flokki sínum í haust og er því til alls líklegur.

Búast má við spennandi keppni um Norðurlandameistaratitil þjóða að þessu sinni, en hann er veittur þeirri þjóð sem vinnur flest verðlaun á mótinu. Undanfarin ár hafa Danir einokað bikarinn og eiga met yfir flesta sigra í röð. Danir mæta að vanda með sterkt og fjölmennt lið til leiks en búast má við að Svíar veiti þeim harða samkeppni, með keppendur á borð við Agnesi Nyman, Mathildu Rosenlind, Önnu-Johönnu Nilsson, Anthony Vu og Ricky Haag í fararbroddi, en þau eru öll í efstu 30 sætum heimslista í sínum flokkum og hafa barist um verðlaun á álfu- og heimsbikarmótum undanfarin misseri.

 

Landslið Íslands skipa:

  • Adam Ómar Levi Ómarsson
  • Arey Amalía Sigþórsdóttir McClure
  • Aron Bjarkason
  • Davíð Steinn Einarsson
  • Eðvarð Egill Finnsson
  • Embla Rebekka Halldórsdóttir
  • Emilý Ngan Thien Nguyen
  • Eydís Magnea Friðriksdóttir
  • Fanney Andradóttir
  • Filip Leon Kristófersson
  • Gabríel Sigurður Pálmarsson
  • Guðbjörg Birta Sigurðardóttir
  • Guðmundur Týr Haraldsson
  • Hugi Halldórsson
  • Ísold Klara Felixdóttir
  • Jakub Kobiela
  • Karen Thuy Duong Vu
  • Móey María Sigþórsdóttir McClure
  • Natalía Ýr Hjaltadóttir
  • Nökkvi Snær Kristjánsson
  • Ólafur Engilbert Árnason
  • Óskar Ingi Agnesar Gunnarsson
  • Prince James Carl Caamic
  • Ronja Halldórsdóttir
  • Samuel Josh Ramos
  • Samúel Týr Sigþórsson McClure
  • Telma Rut Frímannsdóttir
  • Tómas Már Jóhannsson
  • Una Borg Garðarsdóttir
  • Þórður Jökull Henrysson

About María Helga Guðmundsdóttir