20. Smáþjóðaleikarnir í Andorra
20. Smáþjóðaleikar Evrópu eru haldnir dagana 26. – 31. maí í Andorra de Vella.
Í fyrsta skipti er karate ein af keppnisgreinum leikana.
Karatekeppnin fer fram þriðjudag og miðvikudag og eru 3 keppendur frá Íslandi meðal keppenda.
Þau eru:
Una Borg Garðarsdóttir, kata kvenna
Þórður Jökull Henrysson, kata karla
Eydís Magnea Friðriksdóttir, kumite kvenna -61 kg
Una keppir að morgni þriðjudags, Þórður að morgni miðvikudags og Eydís síðdegis miðvikudag.
Þeim til aðstoðar eru Magnús Kr. Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í kata og Ruslan Sadikov, landsliðsþjálfari í kumite.
Þá dæmir Helgi Johannesson, EKF referee á mótinu og fararstjóri er Reinharð Reinharðsson, formaður KAÍ.