Frábær árangur í karate á 20. Smáþjóðaleikunum í Andorra
Í fyrsta sinn í 40 ára sögu Smáþjóðaleika Evrópu var karate ein af keppnisgreinunum.
Mótið fór fram í Andorra að þessu sinni dagana 27. og 28. maí.
Þrír keppendur frá Íslandi tóku þátt í karatehlutanum.
Eydís Magnea Friðriksdóttir vann til gullverðlauna í kumite kvenna -61kg flokki.
Þórður Jökull Henrysson náð í bronsverðlaun í kata karla og
Una Borg Garðarsdóttir lenti í 5. sæti í kata kvenna.
Öll stóðu þau sig frábærlega á mótinu.
Eydís vann Svartfjallaland 1-7 í fyrstu viðureign.
og Monakó 10-0 í þeirri næstu.
Í þriðju viðureign var Möltu dæmdur sigur eftir að hafa fengið í sig fast högg frá Eydísi.
Í fjórðu viðureign sigraði hún Kýpur 1-5 og því efst í flokknum.
Tvær efstu kepptu síðan til úrslita og þar hafði Eydís betur á ný á móti Svartfjallalandi og gullið hennar.
Þórður keppti við Liectenstein í fyrstu viðureign og vann sannfærandi með 37.4 stig gegn 35.4.
Hann tapaði síðan fyrir Svartfjallalandi með 38.2 stigum gegn 36.9.
Þriðja viðureignin var síðan við Möltu og þar sigraði hann með 37.4 stigum gegn 34.9.
Þórður því kominn í undanúrslit og keppti þar við Andorra.
Keppnin var hnífjöfn en Þórður tapaði naumlega með 0,2 stigum, fékk 37.5 gegn 37.7.
Bronsið því hans.
Una Borg keppti fyrri dag mótsins og vann þar eina viðureign en tapaði tveimur og lenti því í 5. sæti.
Þeim til aðstoðar voru landsliðsþjálfararnir Magnús Kr. Eyjólfsson í kata og Ruslan Sadikov í kumite.
Helgi Jóhannesson, EKF dómari, dæmdi báða dagana á mótinu.