banner

39. Karateþing verður haldið sunnudaginn 15. febrúar 2026

39. Karateþing verður haldið sunnudaginn 15. febrúar 2026 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal í fundasölum B og C kl. 10.00 – 16.00.

Hvert héraðssamband og íþróttabandalag, þar sem stundað er karate, á rétt á einum fulltrúa. Fjöldi fulltrúa hvers karatefélags er tilgreint á kjörbréfinu.

Senda þarf inn tillögur sem taka á fyrir á þinginu fyrir lok 24. Janúar.
Þá skal stjórn KAÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa í síðasta lagi 14 dögum fyrir þingið, sem síðara fundarboð.

Kjörgengi til stjórnar og varastjórnar KAÍ hafa þau sem eru í félagi sem hefur karateiðkun á stefnuskrá sinni innan sambandsins og hafa náð 18 ára aldri. Framboðsfrestur til stjórnar og varastjórnar KAÍ rennur út tveimur vikum fyrir ársþing, náist ekki framboð til allra stjórnarsæta með 2 vikna fyrirvara má taka við framboðum á ársþingi til þess sætis eða þeirra sæta sem í vantar.

Framboð til stjórnar Karatesambandsins skulu send á kai@kai.is fyrir kl. 23.59 laugardaginn 31. janúar næstkomandi.

Leitað er eftir framboðum til formanns, 4 í stjórn og 3 í varastjórn.

Þá eru félögin beðin um að tilnefna fulltrúa í Aganefnd KAÍ: 5 aðalmenn og 3 varamenn. Ef hvert félag tilnefnir einn í nefndina ættu næg framboð að berast.

Þingstörf samkvæmt lögum sambandsins. http://kai.is/log-kai/

About Reinhard Reinhardsson