38. Karateþing 2025
38. Karateþing fór fram sunnudaginn 2. mars í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
36 þingfulltúar frá 10 karatefélögum og -deildum auk stjórnarmanna sóttu þingið.
Þingforseti var Valdimar Leó Friðriksson og þingritari Sigþór Samúelsson.
Í tilefni af að 40 ár eru frá stofnun Karatesambandsins ákvað stjórn sambandsins að heiðra nokkra félaga fyrir störf þeirra fyrir Karatesambandið og við útbreiðslu á íþróttinni með Gullmerki KAÍ.
Þau eru Birkir Jónsson, Gunnlaugur Sigurðsson, María Helga Guðmundsdóttir og Wilhelm Cornelius Verheul.
Að loknum hefðbundnum þingstörfum varð nokkur umræða um mótahald, sjálfboðaliða og hvernig hægt væri að ná til iðkenda og forráðamanna þeirra til að auka nýliðun í íþróttinni.
Reinharð Reinharðsson var endurkjörinn formaður sambandsins.
Þrír nýir stjórnarmenn komu í aðalstórn sambandsins, Gaukur Garðarsson, Gunnlaugur Sigurðsson og Ronja Halldórsdóttir.
Tveir nýir voru kosnir í varastjórn, Anna María Þórðardóttir og Elías Guðni Guðnason.
Birkir Jónsson
Gunnlaugur Sigurðsson
María Helga Guðmundsdóttir
Wilhelm Cornelius Verheul