banner

Karatekona og karatemaður ársins 2025

Karatekona ársins 2025:

Eydís Magnea Friðriksdóttir, Karatefélag Reykjavíkur.

Eydís er ung og efnileg karatekona sem keppir í báðum greinum karate, kata og kumite.

Hún á að baki gott keppnisár þar sem hún vann til verðlauna bæði innanlands sem erlendis.

Gull á Smáþjóðaleikunum í Andorra í kumite kvenna -61kg.
Gull á RIG25 í kumite kvenna +61kg.
Gull á ÍM kumite kvenna +61kg og gull í opnum flokki.
Brons á NM í kumite kvenna -61kg.
Bikarmeistari kvenna 2025.

Hún er fastamenneskja í landsliði Íslands í kata og kumite, er góð fyrirmynd og verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Karatemaður ársins 2025:

Þórður Jökull Henrysson, Karatedeild Aftureldingar.

Þórður Jökull er efnilegur keppnismaður sem hefur einbeitt sér að keppni í kata undanfarin ár.
Hann hefur verið með bestu keppendum Íslands í kata og unnið til verðlauna innanlands sem utan á árinu.

Íslandsmeistari í kata karla fullorðinna – 6. árið í röð.
Reykjavíkurmeistari (RIG) í kata karla – 4. árið í röð, fimmti titill.
Gull í kata karla á Bikarmóti KAÍ.
Brons á Smáþjóðaleikunum í Andorra (kata karla).
Silfur á Swedish Open

Hann er fastamaður í landsliði íslands í kata og góð fyrirmynd og verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.

Eydís og Þórður

About Reinhard Reinhardsson