Dómaranefnd karatesambandsins stendur fyrir amk. tveimur dómaranámskeiðum á ári. Annað á vorönn og hitt á haustönn.
Næstu námskeið:
Dómaranámskeið í kumite verður haldið miðvikudaginn 5. mars næstkomandi í B-sal í Íþróttamiðstöðinni Laugardal og hefst kl. 18.00.
Kristján Ó. Davíðsson, Nordic Referee, verður með kynningu á keppnisreglum WKF og hægt verður að taka skriflegt próf að fyrirlestrinum loknum.
Verklegi hlutinn verður síðan á 1. GrandPrix móti KAí laugardaginn 8. mars.
Hægt er að finna keppnisreglurnar á vef KAÍ og safn spurninga sem notaðar eru í prófinu.
https://kai.is/keppnisreglur-wkf/
Hvetjum alla sem leggja stund á keppni í kumite að koma á námskeiðið til að öðlast skilning á keppnisreglunum.