banner

Kristján Helgi og Telma Rut karatefólk ársins 2013

Kristján Helgi og Telma Rut með verðlaunagripi sína fyrir Íslandsmeistaratitla í kumite í haust.

Kristján Helgi og Telma Rut með verðlaunagripi sína fyrir Íslandsmeistaratitla í kumite í haust.

Stjórn Karatesambands Íslands hefur útnefnt eftirfarandi karatekonu og karatemann ársins 2013.

Telma Rut Frímannsdóttir, Karatedeild Ungmennafélagsins Aftureldingar
Telma Rut hefur verið fastur meðlimur landsliðs Íslands í kumite undanfarin ár og tekið þátt í fjölda móta á erlendis með góðum árangri. Fremst ber að telja árangur hennar á Norðurlandamótinu í karate, í apríl 2013, þar sem hún hafnaði í 3.sæti -61 kg. flokki. Að auki þá náði Telma mjög góðum árangri á Opna Sænska meistaramótinu en þar náði hún einnig 3. sæti í – 61 kg. flokki. Þá keppti Telma á Evrópumeistaramótinu í maí og sigraði fyrsta bardag sinn og komst í aðra umferð en beið þar lægri hlut.
Telma Rut er nú í 97.sæti á heimslista WKF yfir keppendur í kumite kvenna í -61 kg. flokki.

Helstu afrek Telmu Rutar á árinu 2013 voru;
1. Íslandsmeistari í kumite, opnum flokki
2. Íslandsmeistari í kumite, +61kg flokki
3. Annað sæti Bikarmeistaramót KAÍ
4. Brons í kumite -61kg á Norðurlandameistaramóti
5. Brons í kumite -61kg á Opna sænska meistaramótinu
6. Komst í 2.umferð í kumite -61kg á Evrópumeistaramóti

Telma Rut er því verðug fyrirmynd fyrir stúlkur í karateíþróttinni.

Kristján Helgi Carrasco, Karatedeild Víkings
Kristján Helgi hefur vaxið sem karatemaður hvert ár og var árið 2013 engin undantekning. Kristján Helgi keppir bæði í kata og kumite en hefur einbeitt sér að kumite á árinu. Hann er bikarmeistari eftir að hafa leitt hvert bikarmót á fætur öðru og lét forystu sína aldrei af hendi frá fyrsta mótinu. Kristján Helgi er þrefaldur Íslandsmeistari, en titlarnir eru bæði í einstaklingsflokkum sem og í liðakeppni. Kristján Helgi hefur verið fastur landsliðsmaður í karate síðustu ár og tekið þátt í flestum þeim verkefnum sem landsliðið hefur staðið fyrir á árinu. Hann hefur stundar æfingar á Spáni nú í haust undir leiðsögn landsliðsþjálfara Spánar.

Helstu afrek Kristjáns Helga á árinu 2013 voru;
1. Bikarmeistari karla 2012-2013
2. Íslandsmeistari í kumite, opnum flokki
3. Íslandsmeistari í kumite –75kg
4. Íslandsmeistari kumite, sveitakeppni karla
5. 3. Sæti í sveitakeppni í kumite á Norðurlandameistarnótinu
6. Komst í 2. umferð í kumite -75 kg í Heimsmeistaramóti ungmenna

Kristján Helgi er því verðugur fulltrúi karatehreyfingarinnar og mikil fyrirmynd fyrir ungt íþróttafólk.

About Helgi Jóhannesson