banner

Fylkir með yfirburði á unglingameistarmótinu í kumite

Sunnudaginn 15. október fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í kumite Í Fylkissetrinu, Norðlingarholti, í umsjón Karatedeildar Fylkis. Karatedeild Fylkis átti mjög góðan dag á unglingamótinu eins og undanfarin ár og stóð uppi sem sigurvegari 11 árið í röð og er því Íslandsmeistari félaga í kumite unglinga. Góð þátttaka var á mótinu, um 55 keppendur frá 9 félögum á aldrinum 12-17 ára.

Þegar heildarstigin voru talin saman, þá stóð karatedeild Fylkis uppi sem sigurvegari með 29 stig, Fjölnir varð í 2. sæti með 10 stig, Þórshamar í 3. sæti með 8 stig og önnur félög með færri stig. Mótsstjóri var María Baldursdóttir og yfirdómari var Pétur Ragnarsson.

Íslandsmeistarar dagsins.

Íslandsmeistarar í dag urðu;
Kumite drengja 12 ára, Andri Blær Kristjánsson, Fylkir
Kumite drengja 13 ára, Hannes Hermann Mahong Magnússon, Þórshamar
Kumite drengja 14-15 ára -63kg, Samuel Josh Ramos, Fylkir
Kumite pilta 14-15 ára +63kg , Hrannar Arnarsson, Fylkir
Kumite pilta 16-17 ára, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir
Kumite stúlkna 12 ára, Viktoría Ingólfsdóttir, Fylkir
Kumite stúlkna 13 ára, Sunna Rut Guðlaugardóttir, Fjölnir
Kumite stúlkna 14-15 ára, Lóa Finnsdóttir, Fylkir
Kumite stúlkna 16-17 ára, Iveta Ivanova, Fylkir

Hér má svo sjá öll úrslit dagsins: IMUkumite2017

About Reinhard Reinhardsson