banner

Dómaranámskeið í kata

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 13. apríl næstkomandi kl. 18:30, í Ráðstefnusal-E í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur og í framhaldi af honum skriflegt próf, að loknu skriflegu prófi verður haldið verklegt próf í sal Karatefélags Reykjavíkur (í Laugardalslaug).

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 1.1.2018. Allir sem ætla í próf, þurfa að sýna algenga keppniskata úr eigin stíl ásamt því að sýna algenga keppniskata úr öðrum stíl.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Skráning á meðfylgjandi síðu;  https://goo.gl/forms/GyDDW7csvoyrTK3j1

About Reinhard Reinhardsson