banner

Fimm keppendur á HM í karate

Fimm keppendur frá Íslandi taka þátt á Heimsmeistaramótinu í karate sem haldið er í Madrid, Spáni, dagana 5. – 11. nóvember.

Fyrstur til að keppa er Aron Anh Ky Hyunh sem keppir í kata karla og Svana Katla Þorsteinsdóttir sem keppir í kata kvenna. Bæði stíga þau á stóra sviðið þriðjudaginn 6. nóvember. Seinna um daginn keppir Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson í -84kg flokki karla í kumite. Miðvikudaginn 7. nóvember keppa þeir Máni Karl Guðmundsson í -67 kg flokki karla í kumite og Ólafur Engilbert Árnason í – 75 kg flokki karla í kumite.
Með í ferðinni eru Ingólfur Snorrason landsliðsþjálfari í kumite og yReinharð Reinharðsson, formaður Karatesambandsins.

About Reinhard Reinhardsson