banner

Dómaranámskeið í kata

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 15. febrúar næstkomandi kl. 18:00, í Ráðstefnusal-C í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur og í framhaldi af honum skriflegt próf.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir keppnisreglur WKF frá 1.1.2018.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Skráning á námskeiðið: https://goo.gl/forms/WY4X02jgz8tnu1kE2

About Reinhard Reinhardsson