banner

Íslandsmeistaramót unglinga í kata 2019

Íslandsmeistaramót unglinga í kata fór fram laugardaginn 4. maí í Íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum.
Keppt var í einstaklings kata 12 – 17 ára og liðakeppni í kata. 78 keppendur frá 10 félögum voru skráðir til leiks auk 14 hópkataliða. Keppt var á 2 völlum samtímis.

Eftir skemmtilegar viðureignir fóru leikar svo að Karatefélag Reykjavíkur varði félagstitlinn frá fyrra ár og stóð uppi sem Félagsmeistari unglinga í kata 2019.

Yfirdómari á mótinu var Helgi Jóhannesson og Karatedeild Breiðabliks sá um mótshaldið.

Íslandsmeistarar unglinga í kata 2019

Íslandsmeistarar unglinga í kata:
Kata piltar 12 ára: Fróði Vattnes KFR
Kata stúlkur 12 ára: Trixie Tngot ÍR
Kata piltar 13 ára: Björn Breki Halldórsson KFR
Kata stúlkur 13 ára: Anna Koziel KFR
Kata piltar 14 ára: Hugi Halldórsson KFR
Kata stúlkur 14 ára: Eydís Magnea Friðriksdóttir Fjölnir
Kata piltar 15 ára: Tómas Pálmar Tómason Breiðablik
Kata stúlkur 15 ára: Oddný Þórarinsdóttir UMFA
Kata piltar 16-17 ára: Þórður Jökull Henrysson UMFA
Kata stúlkur 16-17 ára: Freyja Stígsdóttir Þórshamar

Hópkata táninga 12 og 13 ára: KFR A (Anna, Iða Ósk og Una Borg) KFR
Hópkata táninga 14 og 15 ára: KFR 3 (Hugi, Björn Breki og Nökkvi) KFR
Hópkata táninga 16 og 17 ára: Þórshamar A (Freyja, Kristjana Lind og Stefán Franz) Þórshamar

Heildarúrslit

About Reinhard Reinhardsson