banner

Nýir dómarar í kumite

Fimmtudaginn 30.september síðastliðinn stóð Karatesambandi fyrir dómaranámskeiði í kumite, Helgi Jóhannesson EKF Referee stóð fyrir námskeiðinu. Farið var yfir keppnisreglur WKF útgáfu 2020, auk þess sem nokkur video voru sýnd til að skýra reglur betur út. Góð þátttaka var á námskeiðinu og fóru 10 einstaklingar í skriflegt próf, af þeim fóru svo 3 í verklegt próf á GrandPrix mótinu sem haldið var á Akureyri 3.október. Stóðust þeir allir prófið með sóma.

Ný réttindi fengu;
Aron Breki Heiðarsson, Breiðablik, Judge-B
Jóhannes Felix Jóhannesson, Breiðablik, Judge-A
Elías Snorrason, KFR, Referee-A

Frá dómaranámskeiðinu

About Reinhard Reinhardsson