banner

5 gull á Evrópumóti smáþjóða í karate

Landslið Íslands í kara­te tók þátt á átt­unda Evrópumóti smáþjóða i kara­te sem haldið var í Liechten­stein dagana 23. – 25. september. Íslensku kepp­end­urn­ir náðu í fimm gull, tvö silf­ur og sex brons á mót­inu.

Ísold, Þórður og Una.

Þórður Jök­ull Henrys­son og Ísold Klara Fel­ixdótt­ir unnu tvö gull hvort og Una Borg Garðars­dótt­ir vann einnig gull í sín­um flokki. Þórður sigraði full­orðins­flokki og U21 flokki. Ísold vann kumite bæði í -68 kg og -61 kg. Una sigraði í Ca­det-flokki í kata.

Auk þeirra unnu Móey María Sigþórs­dótt­ur McClure silf­ur í U21 árs flokki í kata og Samu­el Josh Ramos silf­ur í full­orðins­flokki í kumite í -67 kg og brons í kumite U21 flokki -67 kg.

Aðrir verðlauna­haf­ar voru þau Ey­dís Magnea Friðriks­dótt­ir með tvö brons í kata, Adam Ómar Ómars­son brons í kata, Davíð Steinn Ein­ars­son brons í kumite og Daði Loga­son brons í kumite.

Um 220 kepp­end­ur frá átta af níu smáþjóðum Evr­ópu tóku þátt í mót­inu. Næsta Smáþjóðamót verður síðan haldið að ári í Lúx­em­borg.

Aftari röð: Sadik, Tómas, Daði, Samúel, Samuel, Þórður og Davíð.
Fremri röð: Jakub, Adam, Ísold, Una, Eydís og Móey.

Una, Davíð, Daði og Adam

Móey, Eydís, Ísold, Þórður og Samuel.
Verðlaunapeningar mótsins

About Reinhard Reinhardsson