banner

Dómaranámskeið í kata

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 7.febrúar næstkomandi kl. 19:15, í veitingasal Smárans, íþróttahúsi Breiðabliks, Kópavogi.

Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur og í framhaldi af honum skriflegt próf,að loknu skriflegu prófi verður haldið verklegt próf í sal karatedeildar Breiðabliks.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 8.0. Við munum aðlaga núverandi spurningar, eins og þær eru á vefnum, við nýju reglurnar. Allir sem ætla í próf, þurfa að sýna algenga keppniskata úr eigin skóla ásamt því að sýna algenga keppniskata og grunnkata úr öðrum skóla.

Allir núverandi katadómarar eru hvattir til að mæta þar sem þó nokkrar breytingar hafa verið á keppnisreglum WKF fyrir kata. Einnig hvetjum við félög til að koma með nýja dómara.

Skráning í tölvupósti til Helga Jóhannessonar.

About Helgi Jóhannesson