banner

Kristján Nordic Karate Referee

KAI_2016_Kristjan_Davidsson_Nordic_RefereeÁ Norðurlandameistaramótinu í Aalborg, Danmörku, 9.apríl síðastliðinn fór Kristján Ó. Davíðsson í dómarapróf.  Á föstudeginum var skriflegt próf en verklegt próf fór fram á laugardeginum á meðan mótið stóð yfir.  Kristján stóð sig vel og fékk Nordic kumite Referee réttindi að mótinu loknu.  Við óskum honum til hamingju með nýju réttindi sín, Kristján var kominn með Nordic kata Judge réttindi og er því núna Nordic Karate Referee.  Kristján er fjórði Íslendingurinn með Nordic réttindi, auk hans eru Pétur Freyr Ragnarsson, Ólafur Hreinsson og Willem C. Verhaul með Nordic réttindi. Á mótinu dæmdu auk Kristjáns, Helgi Jóhannesson og Pétur Freyr Ragnarsson.

About Helgi Jóhannesson